Descargar APP gratis en APP Store 72434n
Descargar APP gratis en Play Store
Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist...
Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfestinum Peter Thiel. Vance á marga vini í Kísildalnum og það mætti segja að hann tengi saman tæknigeirann og þjóðernispopúlistana sem fylkja sér á bak við Trump.